Snaupulegir Rússar

Rússarnir lágu bara kylliflatir fyrir ágætis liði Spánverja.


mbl.is „Núna eigum við alla möguleika í heiminum“
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Aumingja flugumferðarstjórar!!!

Greyin, þeir hafa það svo bágt á sínum lúsalaunum að þeir verða að krefjast hærri launa, já ég segi hærri launa því staðreyndin er sú að þeir vilja fá sömu laun fyrir minni vinnu. Ég skil vel að þeir vilji minnka yfirvinnu en að krefjast sömu launa og áður er rugl. Það er nú ekki eins og þeir eigi ekki fyrir salti í grautinn með hátt í milljón á mánuði. Ég segi nú bara, hvernig væri að hækka frekar laun launalægstu stétta þjóðfélagsins svo það fólk hafi kannski ráð á nokkrum dropum á bílinn sinn og brauðbita eftir að hafa greitt reikninga fyrir allt að 90 % launa sinna.

 Þetta yfirvinnubann bitnar á öllum sem ætla að ferðast innan sem utan lands með flugi og fólk sem missir af flugi eða þarf að breyta tengiflugum fær engar bætur fyrir skaða sinn því flugfélögin hafa sínar reglur og geta nú ekki farið að koma til móts við almenning á þessum síðustu og verstu tímum þegar þau eru með allt niður um sig...!!!


mbl.is Flugumferðarstjórar á fundi hjá ríkissáttasemjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn...björn...aldrei hrópa björn!!!

Fólk er að missa sig yfir þessu bjarndýrafári, það sér eitthvað hvítt svo er það bara hesturinn á næsta bæ eða vambsíð kind. Er þetta ekki komið út í öfgar. Það þýðir ekki að hrópa úlfur, úlfur, ja eða björn, björn endalaust því það missir að lokum marks og við þekkjum jú öll endann á þeirri sögu. Og já ég ítreka enn um vanþekkingu almennings á náttúrufræði, hvernig væri að bjóða upp á ókeypis námskeið í dýrafræði þar sem fólki er kennt að þekkja mun á helstu dýrategundum landsins þá myndi fólk kannski átta sig betur á því hvort það er að horfa á hest eða hvítabjörn !!!!!!
mbl.is Bjarndýrsútkall í Langadal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samsæri olíufursta og ráðandi ríkja heimsins

Já svei mér ef þetta er ekki farið að lykta illilega af samsæri en hvað getum við almenningur svo sem gert í því, hætt að kaupa bensín. Ég fer nú bara bráðum að leggja bílnum kaupa mér græna kortið og hjól með þessu áframhaldi. Ég er bara venjuleg kona og hef engar úbertekjur og á gamlan bíl sem eyðir miklu og ég held hreinlega að ég hafi bráðum ekki efni á að kaupa þetta súperdýrasamsærisbensín á gamla jálkinn. Maður gæti svo sem haft það verra og ég held að þetta sé svo sem ekkert svo slæm þróun ef maður lítur bara á þetta pollýönuaugum. Kannski fer maður að hreyfa sig meira fyrir vikið. Kannski er þetta samsæri til þess að sporna við offituvanda vestrænna ríkja, ja sumum veitir nú ekkert af því hreyfa á sér rassgatið en come on, ég fer ekki í útilegu á hjóli. Wink


mbl.is Bensín hækkar um 3 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver sér ekki mun á birni og kind

Hvítabjörn og sauðkind eru tvennt ólíkt þó bæði séu hvít og fætur þeirra eiga ekkert sameiginlegt, annað hefur loppur og hitt klaufir því geta sporin varla verið lík. En hvað um það fólk virðist samt sem áður ruglast á þessum ólíku dýrum. Ég spyr bara; Hvað varð eiginlega um náttúrufræðikennslu þessa lands? Miðað við lýsingarnar undanfarið þá hefur eitthvað miður farið við kennslu í dýrafræði. Fólk ætti kannski að taka öðru hverju upp dýrafræðibækur sér til skemmtunar og fróðleiks. Til að mynda er hægt að fá einstaklega aðgengilegar dýrabækur á barnadeild Borgarbókasafns sem ættu að hæfa vitsmunastigi flestra sem ekki sjá mun á hvítabirni og kind! Því ætti engum að misfarast að gera greinamun þarna á milli eftir lestur slíkst skemmtiefnis.


mbl.is Björninn væntanlega rolla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HEHE

Verður maður þá að fara krísuvíkurleiðina í Krísuvík, þvílík krísa Shocking
mbl.is Krýsuvíkurvegur lokaður í kvöld og nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldra fólk oft ekkert betra

Ég var nú stödd á ónefndu tjaldsvæði í fyrrasumar ásamt fjölskyldunni og það voru sko ekki unglingarnir sem héldu vöku fyrir tjaldsvæðisgestum heldur hópur eldri borgara sem mundu ekki hvað þeir hétu sökum ölæðis. Auðvitað kemur unga fólkið oftar á tjaldsvæði til þess eins að skemmta sér en oft er eldra fólkið ekkert betra því þetta er ekki í fyrsta skipti sem miðaldra fólk eða eldra heldur vöku fyrir öðrum gestum sem gjarnan vilja taka daginn snemma þannig að spurningin er hverjar aldurstakmarkanir eigi að vera og hvort það þurfi ekki bara að takmarka tjaldsvæði við barnafólk og banna alla aðra sem hugsanlega geta valdið truflun. En hvar eiga þá vondir að vera
mbl.is Tjaldstæðin ekki fyrir alla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband